Nei, Enta ehf siglir sinn sjó þrátt fyrir samdrátt í verkefnum og efnahagslægðir. Fjölbreytileg reynsla og þekking kemur að góðum notum um þessar mundir, ásamt góðum tækjakosti, við erum ávallt klárir í bátana þegar verkefni býðst.
Hins vegar gætu jarðhræringarnar á suðurlandi haft áhrif á hina upprunalegu Entu og Entujökul, enda eru þau staðsett í Mýrdalsjökli.
Ef Katla lætur á sér kræla er ljóst að Enta verður í stúkusæti við eldstöðina.
Hugur okkar er þó að sjálfsögðu hjá bændum og þess vegna vonum við að Katla láti bíða eftir sér í bili, helst í nokkur hundruð ár, sem eru þó aðeins nokkur augnablik í jarðsögunni.
